Edesign
Hraunsápa
Hraunsápa
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Við blöndum fínmöluðu hrauni í sápuna. Það gefur henni fíngerða kornótta áferð sem þú finnur þegar þú þværð þér. Djúpbláar rákir liðast um gráa sápuna og mynda ólíkt mynstur í hverri sneið.
Fyrst finnurðu ferskan ilm af appelsínu og furu. Þegar sápan freyðir kemur fram hlýr ilmur af tóbaki og mjúkri vanillu. Við handgerum sápuna í litlum skömmtum á Íslandi úr ólífuolíu, kókosolíu, sætmöndluolíu og castor olíu. Hún gefur mjúka og þétta froðu.
Í settinu
- Ein handgerð hraunsápa
- Einn sápudiskur úr viði
- Einn ofinn sápupoki
Nuddaðu sápunni á milli blautra handanna þar til hún freyðir. Í pokanum nýtast líka síðustu sápubitarnir. Láttu sápuna þorna á viðardiskinum á milli nota.
