Safn: Olíu stjakar og Ilmandi hraunsteinar

Innblásnir af eldfjallakenndri náttúru Íslands. Hraunstjakarnir okkar eru hannaðir til að færa hlýju, ilm og stemningu inn á heimilið.

Hver hlutur er unninn úr náttúrulegum hraunsteini, sem gefur hverjum stjaka sitt eigið form, áferð og karakter. Með mildri hlýju frá loga sprittkertis losnar ilmurinn hægt úr ilmandi hraunmolum eða ilmolíu og skapar rólega, jarðbundna og notalega stund.

Þessi lína er fyrir þá sem vilja meira en bara ilm — línan er einstök, náttúrulegur hlutur og íslensk hönnun fyrir heimilið.