Ilmolíur – öryggi og upplýsingar um innihald

Á þessari síðu má finna gögn um ilmolíur sem notaðar eru í vörum hjá Edesign, þar á meðal öryggisblöð (SDS), IFRA-vottorð, ofnæmisgreiningar og yfirlýsingar birgja um ofnæmisþætti.

Við birtum þessi gögn til að stuðla að gagnsæi. Þau veita upplýsingar frá birgjum um samsetningu ilmolía, ráðlögð hámarkshlutföll við notkun, örugga meðhöndlun og tilgreinda ilmofnæmisþætti.

Gögnin byggjast á upplýsingum frá birgjum okkar og eru aðgengileg svo viðskiptavinir geti kynnt sér betur þau efni sem við notum í vörurnar okkar.