Edesign
Nótt - Handgerður stjaki
Nótt - Handgerður stjaki
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Nótt – handgerður stjaki
Handgerður stjaki frá Edesign með föstum hraunsteini í skálinni. Hlýr logi og mildur ilmur skapa notalega stemningu.
Innifalið
- Stjaki.
- Poki með ilmandi hraunsteinum.
- 20 ml ilmolía.
Notkun
- Settu stjakann á stöðugt, hitaþolið undirlag, fjarri dragsúgi og eldfimum efnum.
- Hraunsteinninn er fastur í skálinni. Láttu hann vera kyrran.
- Settu eitt lítið sprittkerti í kertastæðið undir skálinni og kveiktu á því.
Örugg notkun
Hafðu alltaf auga með loganum. Slökktu á kertinu áður en þú yfirgefur herbergið. Láttu stjakann og steinana kólna alveg áður en þú færir stjakann eða bætir nokkrum dropum af ilmolíu á steinana. Aldrei bæta olíu á heita steina eða á meðan kveikt er á kertinu.
Notaðu ilmolíu sem er ætluð fyrir hraunsteinana og fylgdu leiðbeiningunum á glasinu. Ekki hella olíu á kertið eða logann. Hafðu stjakann og olíuna þar sem börn og gæludýr ná ekki til.
Skoða upplýsingar og öryggisgögn um ilmolíur
Ilmtegundir
- Ró: Vanilla og tóbak.
- Eirð: Lavender og límóna.
- Jól: Fura, kanill, appelsína og sítróna.
- Kyrrð: Frönsk vanilla.
- Friður: Kókos og límóna.
- Hvíld: Bómull og moskus.
- Værð: Vanilla og lavender.
- Hátíð: Greni með sætum undirtón.
- Hlýja: Kanill, appelsína, fura og sítróna.
